Hvernig væri nú að bloggar um okkar skemmtilega líf.. hvað
segiði um það stelpur?
Ég ætla nú reyndar ekkert að vera að tjá mig um ykkur en
ég get allveganna sagt hvað er að gerast hjá mér. Þessa dagana er
mikið um bústaðarferðir í vinnunni hjá mér. Um síðustu helgi var
farið með BT Þotuliðinu í bústað í Miðhúsaskógum, en það er á sama
stað og við fórum í í fyrra. Þetta var mjög vel heppnuð ferð og
held ég að allir séu bara sáttir við afrekið.
Vonandi verður
þetta bara árlegur viðburður. Það væri ekki slæmt. En á maður
kannski ekki að byrja á þí sem á undan var???
Árshátíð Árdegi


Þetta var mesta snilldarkvöld sem ég hef bara upplifað svei mér
þá.. 
Það var svo gaman, og allir í svo góðu
skapi að það var ekki eðlilegt.. Við gistum á Hótel Örk í eina nótt
og það skemmtilega við það er að enginn fer eða hverfur.. allir eru
á hótelinu og eru að djamma þar til um morgunin.
Svo þegar allir
eru orðnir þreyttir þá er bara stutt að fara á hótelherbergið og
voru nú sumir sem fóru snemma inná herbergi, nefni enginn nöfn.

en ég var allaveganna ekki ein af þeim. Ég var frísk til
6 um mörgunin.. og var bara að skemmta mér með hinum og þessum..
Bjuggum til smá partý inná herbergi hjá einum og settum bara rúmin
upp og við vegginn. 
og Halldór tók fram gítarinn og spilaði
glimrandi vel, miðað ástand hans.
Hlutir sem gerðust um kvöldið:
-Dansaði af mér vitið.
-Skjárinn á símanum mínum brottnaði.
-Var svo pirruð útaf því að ég fór inná bað og smallaði
bjórflösku í vaskinn.( Var reyndar pínu
óvart.)
-Fór í slag við verslunarstjórann minn
á herbergisganginum og hann literally, hlammaði mér í
gólfið. En þetta var alltígóðu, og við hlógum mikið af
þessu.
-Kenndi Rúnari Riverdance uppá sviði. Sem var hluti af
skemmtiatriði okkar. ( Skífunnar,
kringlunni)
og við eigum klárlega að fá verðlaun
fyrir.. erum að vinna í því. 
-Var ógeðslega þunn á sunnudeginum.
-gerðist örugglega eitthvað meira... ef svo er látið mig vita..
ég man það ekki í augnablikinu.
Síðasta helgi var ótrúlega nice.. þó mikil drykkja hafi átt sér
stað. Sumir fóru á föstudeginum í bústaðinn en ég fór ekki fyrr en
á laugardeginum því hann Andri minn var að fara til Spánar á
laugardeginum og vildi ég alls ekki fara deginum áður en hann fór.
Um leið og ég kom þá lyftist stemningin.. 
Svo er það næsta helgi sem verður örugglega algjör snilld.
Við úr Skífunni erum að fara í bústað á stað sem heitir
Minniborgir. Ég kem með update um það að sjálfsögðu.
Svo má ekki gleyma afmælinu hjá þeim Haffa og Sibba. En Lilja og
Anna koma með blogg um það þar sem ég missti af því, vegna
árshátíðar.
En þessi vika verður örugglega lengi að líða því ég hann Andri
minn er á Spáni með felögum sínum í hálfgerðri djammferð. Ég hef
endalausar áhyggjur og sef því ekki vel.. Þeir eru 6 saman og þegar
svona margir eru saman og fullir er stundum erfitt að halda
hópnum.. en ég vona að þeir fari varlega og verða prúðir...
Ég
veit að ég ætti ekki að hafa áhyggjur en ég er bara svona gerð, ég
vil passa upp á alla. 
Ætla ekki að hafa þetta lengra..
KV. ESTER